Sjúklingurinn í brennidepli - Mikilvægast fyrir Eisai

Árið 2005, þegar lyfjafyrirtækið Eisai hugðist hefja starfsemi sína í Svíþjóð og á hinum Norðurlöndunum var Christer Ahlberg sérvalinn í verkefnið. Með reynslu að baki hjá ýmsum lyfjafyrirtækjum, sem yfirmaður viðskiptasviðs, markaðsstjóri og sölustjóri, gjörþekkti hann atvinnugreinina. Valið var því auðvelt fyrir Eisai. Valið var einnig auðvelt fyrir Christer Ahlberg. Fyrir hann, með sína einstöku athafnasál, var erfitt að hafna tilboði Eisai um að fá að byggja starfsemina upp frá grunni.

Christer Ahlberg fékk að taka þátt í hluta af útþensluáætlun Eisai, metnaðarmáli fyrirtækisins að vaxa frá því að vera eingöngu japanskt fyrirtæki í að verða fyrirtæki á heimsvísu. Áætlunin fól í sér að koma á fót sænsku og norrænu aðalskrifstofunni á Stokkhólmssvæðinu. Verkefnið hafði aðdráttarafl, það hafði einnig HHC. Human Health Care – hugtakið sem sameinar framtíðarsýn fyrirtækisins um að hafa ávallt að leiðarljósi velferð sjúklinganna og aðstandenda þeirra
- Já sú atvinnugrein sem við erum í verður sífellt iðnvæddari. Það er auðvelt að tapa sjónar af sjúklingnum. Mér finnst framtíðarsýn Eisai um Human Health Care mannúðleg, segir Christer Ahlberg.
- Það er svo sannarlega einstakt í lyfjaiðnaðinum að hluthafarnir heimili fyrirtækinu formlega að setja ávallt sjúklingana í fyrsta sæti. Við höfum það meira að segja skráð í “stjórnarskrána”, segir Christer Ahlberg.

Sveigjanlegt skipulag
HHC krefst sveigjalegs og dreifs skipulags og að lagt sé við hlustirnar. Þetta gerir Eisai.
- Við erum þar sem okkar er þörf. Annars gengi þetta ekki, segir Christer Ahlberg.
- Ég trúi á fyrirmynd okkar. Í staðinn fyrir að staðsetja fyrirtækið miðlægt og leggja áherslu á starfsemina á fáum stöðum og vaxa þaðan, höfum við valið að dreifa okkur. Fjarlægðirnar verða minni, við fáum staðarþekkingu og getum aðlagað starfsemina með hliðsjón af heilbrigðisþjónustunni í hverju einstöku landi. Christer Ahlberg álítur að staðsetning útibúa Eisai víða í heiminum sé nauðsynleg til unnt sé að standa við einkunnarorðin HHC. Öll útibúin eru staðsett með það fyrir augum. Þannig að Eisai geti á sem bestan hátt greint þörfina á viðkomandi svæði og aðlagað starfsemina að henni.
- Dreift skipulag gerir auðveldara um vik að öðlast þekkingu og reynslu á hverjum stað fyrir sig. Maður er einfaldlega nær sjúklingunum, læknunum og heilbrigðisyfirvöldum, segir Christer Ahlberg.

Farið gætilega af stað
Þegar Eisai hóf starfsemi sína í Svíþjóð var farið gætilega af stað. Vinnan hófst í kompunni heima, eða réttara sagt í litlu herbergi á háaloftinu á heimili Christer Ahlberg. Nú eru liðin nokkur ár frá upphafinu. Í dag er skrifstofan í Danderyd og 20 starfsmenn starfa víða á Norðurlöndunum.
Til að koma lyfjum sínum á markaðinn starfaði Eisai í upphafi m.a. með Pfizer og Janssen-Cilag. Það samstarf er að hluta til enn vil lýði en eftir því sem Eisai hefur vaxið hafa menn einnig valið að sækja fram og vera sýnilegri undir eigin nafni.
Allan tímann hefur fjármagnsstyrkur japanska móðurfyrirtækisins verið bakhjarl. Það hefur einnig evrópska aðalskrifstofan í Englandi verið.
- Þetta hefur verið skemmtilegt ferðalag, segir Christer Ahlberg. Við byrjuðum smátt, nú erum við með starfsemi á öllum Norðurlöndunum.

Björt framtíð
Á rannsóknarstofum Eisai, víða um heim, standa stöðugt yfir 400 rannsóknarverkefni. Mörg þessara verkefna eru þróuð alla leið og úr verða ný lyf og meðferðarleiðir. Í framhaldi af rannsóknarstarfinu hefur Eisai sett fimm ný lyf á norræna markaðinn, frá því árið 2005. Eisai er í dag leiðandi lyfjafyrirtæki í heiminum. Meðal lyfja þess eru m.a. lyf við Alsheimer, flogaveiki og verkjum. Nú herðum við enn frekara leitina að enn betri lyfjum á fjölda meðferðarsviða.
- Mörg ný lyf eru í þróun. Eitt á bráðalækningasviði og eitt við Parkinson sjúkdómi. Það stendur einnig yfir mjög lofandi þróunarstarf á krabbameinssviðinu, segir Christer Ahlberg.
- Þegar svolítið lengra líður er von á lyfjum með nýjan verkunarmáta, sem hefta og vonandi lækna Alzheimer.

Christer Ahlberg viðskiptafræðingur er forstjóri hjá Eisai. Þekkingu sína á lækna- og lyfjavísindum hefur hann aflað sér á starfsferli sínum.